Naust Marine hefur verið valið eitt af framúrskarandi fyrirtækjum landsins af fyrirtækinu Creditinfo.
Creditinfo hefur unnið ítarlega greiningu á styrk- og stöðugleika íslenskra fyrirtækja miðað við ýmsar lykiltölur og breytur árið 2011.
Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá eru 244 fyrirtæki sem uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá vottun sem „Framúrskarandi fyrirtæki 2011"
Naust Marine er eitt þessara fyrirtækja og telst því meðal fremstu fyrirtækja í eflingu íslensks atvinnulífs samkvæmt mati Creditifo.