Vegna aukinnar eftirspurnar eftir vörum og þjónustu Naust Marine í vesturheimi hefur Naust Marine opnað söluskrifstofu í Seattle í Bandaríkjunum. Skrifstofur Naust Marine USA verða staðsettar að 4816 15th Ave NW , Seattle WA 98107.
Það er von Naust Marine að opnunin muni auka þjónustu við viðskiptavini og bæta aðgengi þeirra að ítarlegrum upplýsingum um framleiðsluvörur fyrirtækisins.
ATW kerfi Naust Marine er þegar í notkun í tveimur stórum togurum í eigu bandaríkra fyrirtækja, Bristol Explorer sem er í eigu B&N Fisheries og Northern Eagle sem er í eigu American Seafoods.
Auk þessara skipa hefur kerfið verið sett upp í skipum fyrirtækja frá Rússlandi, Kína, Hollandi, Suður-Kóreu og Japan á undanförnum árum . Kerfið er nú í notkun um borð í rúmlega áttatíu togurum, sem gerðir eru út við mjög ólíkar aðstæður í ólíkum heimshlutum. Má þar nefna Alaska, Nýfundnaland, Argentínu, Chile, Suður -og Vestur-Afríku.
Þá bendir allt til þess að eftirspurn eftir ATW kerfinu muni aukast enn frekar á næstu árum þar sem sífellt fleiri útgerðarmenn og skipstjórar eru að gera sér grein fyrir kostum rafknúinna togvinda fram yfir vökvaknúnar glussavindur.