Iðnstýrideild
Starfsmenn Iðnstýrideildar Naust Marine hf eru sérhæfðir í sjálfvirknilausnum fyrir iðnfyrirtæki. Þeir hafa langa reynslu í hönnun og viðhaldi á stjórn- og vaktkerfum fyrir veitur, frystihús, matvælakerfi, skip og olíufélög.
Í stjórn- og vaktkerfum Naust Marine er notast við skjámyndakerfi sem birta upplýsingar og viðvaranir á viðeigandi stað á grafískri mynd af kerfinu. Þar er einnig hægt að breyta stilligildum fyrir kerfin á einfaldan hátt.
Kerfin má klæðskerasauma fyrir alla þá sem þurfa að hafa góða yfirsýn yfir búnað sinn, þægilega stjórn á öllum vélum og vinnuferlum á einum stað, örugga vöktun og rekstraröryggi.
Nánari upplýsingar um kerfi, sem hafa verið þróuð, má sjá með því að smella á hnappana í rammanum vinstra megin á síðunni.