Naust Marine mun kynna vörur sínar á sýningunni Pacific Marine Expo sem haldin verður í Seattle í Bandaríkjunum dagana 18 til 20 nóvember.
Sýningin er stærsta sjávarútvegssýning sem haldin er á vesturströnd Bandaríkjanna enda er Seattle ein stærsta miðstöð útgerðar þar í landi.
Naust Marine hefur að undanförnu lagt aukna áherslu á að kynna vörur sínar á Bandaríkjamarkaði og m.a. gert samninga við stórfyrirtækin American Seafoods og Harris Electric.
