Carl Aamodt & Co. frá Kristiansand í Noregi hefur samið við skipasmíðastöðina Karstensens, í Skagen í Danmörku, um smíði á 36m snurvoðabát, sem hefur fengið nafnið Havfjord.
Skipsskrokkurinn er smíðaður í Póllandi en lokasmíði fer fram hjá Karstensens.
Skipið verður smíðað samkvæmt stöðlum DNV-GL+1A og verður með 735kW aðalvél
og 3600mm skrúfu.
Eigandinn Carl Aamodt og samstarfsfélagar hans, James Thores Jr. og Scott Andrew Thores, stunda bæði botnfisks- og uppsjávarveiðar.
Havfjord verður útbúið með allra nýjustu tækni, þar á meðal eru sérsniðnar rafmagnsvindur
ásamt stjórnun frá Naust Marine.
Sambærilegur búnaður var afhentur í snurvoðabátana Good Hope og Neeltje 2019/2020.
Búnaður frá Naust Marine sem nú er í smíðum fyrir Havvon
(3) Togvindur - 130 kW fyrir 1,100 mts af 28 mm vír
- ATW togvindustjórnun fyrir snurvoð og togveiðar (með einu og tveimur trollum)
(2) Snurvoðavindur - 280 kW fyrir 6,600 mts af 50 mm vír
(4) Tvöfaldar netavindur - 2x 75 kW hver
(1) Hjálparvinda - 55 kW
(2) Hjálparvindur - 5.8 kW
(1) Ankerisvinda fyrir 18mm Q2 keðju
Naust Marine mun auk þess smíða allan stjórnbúnað fyrir vindurnar með vatnskældum tíðnibreytum og AFE einingum sem skila bakaflinu aftur inn á ásrafal.
Skipið verður keyrt á fljótandi tíðni 400-440V, 50-60 Hz. Vindunum verður hægt að stjórna bæði frá brú og dekki.
Afhending er áætluð í júlí 2021