Aukavindur
Naust Marine hannar og framleiðir allan aukavindubúnað sem nauðsynlegur er til að fullkomna fiskveiðar skipa. Aukavindubúnaðinn er hægt að tengja við ATW togvindustjórnkerfi Naust Marine, það gerir viðskiptavininum kleift að fylgjast með mótorhraða, mótorhleðslu, hitastigi, viðvörunum og fleira. Öll stjórnkerfi frá Naust Marine hafa þann valmöguleika að hægt er að tengjast þeim frá landi (fjartenging).
Fjölbreyttir valmöguleikar með tengingu við ATW Togvindustjórnun
- Hægt að þjónusta búnað frá landi í gegnum nettengingu skips
- Samkeyrsla fyrir allt að 4 spil í einu (t.d gilsavindur, grandaravindur)
- Spennustýring
- Fyrirfram forritaðar aðgerðir og fleira